Messur

Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 18. október

Sunnudaginn 18. október verður fjölskylduguðsþjónusta í Neskirkju kl. 11. Krílakórinn og barnakórinn syngja undir stjórn Tinnu Sigurðardóttur. Það verður söngur, leikur og gleði í kirkjunni á sunnudaginn, verið hjartanlega velkomin.

By |2026-10-17T11:57:10+00:0015. október 2026 21:48|

Umhverfismessa og barnastarf sunnudaginn 27. september

Aldin – eldri aðgerðarsinnar gegn loftslagsvá, vettvangur eldra fólks sem lætur sig loftslagsmál og umhverfisvernd varða, tekur virkan þátt í messunni. Félagar úr Aldin syngja undir stjórn Sólveigar Baldursdóttur og Søren Gaardsted Frandsen organisti leikur undir. Pétur Gunnarsson les ljóð og Steinunn Jóhannesdóttir les ritningarlestur. Sr. Sigurður Árni Þórðarson predikar og sr. Skúli Sigurður Ólafsson [...]

By |2026-09-21T14:49:53+00:0021. september 2026 14:49|

Sunnudagurinn 18. janúar

Sunnudaginn 18. janúar kl. 11 verður messa og barnastarf í kirkjunni. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar, organista. Barnastarf verður í safnaðarheimilinu á sama tíma.

By |2026-01-15T12:28:28+00:0015. janúar 2026 12:28|

Helgihald um áramót

Gamlárdagur 31. desember Aftansöngur kl. 18 Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar flutt. Prestur, sr. Jón Ómar Gunnarsson. Nýársdagur 1. Janúar Hátíðarmessa kl. 14 Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar flutt. Prestur, sr. Skúli S. Ólafsson

By |2025-12-28T16:14:37+00:0028. desember 2025 16:14|

Jólastund barnanna og jólaball

Það verða sannkölluð barnajól í Neskirkju um hátíðarnar á aðfangadag kl. 16 verður jólastund barnanna í kirkjunni meðan beðið er eftir að jólin verði hringd inn. Stúlknakór Neskirkju syngur. Viðstöddum býðst að taka þátt í að leika jólasöguna og við lifum okkur inn í gleði og hátíð jólanna. Þann 26. desember, annar dagur jóla, kl. [...]

By |2025-12-22T13:49:04+00:0022. desember 2025 13:49|

Sunnudaginn 9. nóvember: Messa til heiðurs Bólu – Hjálmari

Sunnudaginn 9. nóvember kl. 11 verður barnastarf og messa til heiðurs Hjálmari Jónssyni skáldi. Hann er betur þekktur sem Bólu-Hjálmar og fæddist á Hallandi í Eyjafirði 1796. Hann lést 25. júlí 1875. Kór Neskirkju hefur æft lög íslenskra tónskálda við ljóð Bólu-Hjálmars sem flutt verða í messunni. Þorgeir Tryggvason, heimspekingur, flytur erindi um skáldið í [...]

By |2025-10-29T15:52:32+00:0028. október 2025 11:06|

Messa og barnastarf á sunnudaginn

Sunnudaginn 28. september verður messa og barnastarf kl. 11. Jón Ómar Gunnarsson, þjónar og predikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Söngur, sögur og gleði í sunnudagaskólanum. Samfélag og kaffi eftir messu á Torginu. Verið hjartanlega velkomin í kirkjuna ykkar!

By |2025-09-25T11:50:49+00:0025. september 2025 11:48|

Messa og barnastund 4. október kl. 11

Sunnudaginn 4. október kl. 11:00 er messa og barnastund í Neskirkju. Steingrímur Þórhallsson er við hljóðfærið og leiðir söng félaga úr Kór Neskirkju. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Sunnudagaskólinn tekur þátt í upphafi messu en fer síðan í safnaðarheimilið. Þar verður einnig mikil söngur auk þess sem sögur eru sagðar, Nebbi kemur í heimsókn [...]

By |2017-04-26T12:23:09+00:0029. september 2015 11:40|

Messa og barnastarf 27. september

Það er óhætt að segja að það verður mikið sungið í messu næsta sunnudags. Bæði Kór Neskirkju og Stúlknakór Neskirkju syngja og leiða safnaðarsöng. Auk þess syngur Jóhanna Halldórsdóttir söngkona einsöng. Stjórnandi og organisti er Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn tekur þátt í upphafi messu en fer síðan [...]

By |2017-04-26T12:23:10+00:0024. september 2015 10:59|