Ár og tár
Lífið er til unaðar en ekki til dauða. Ytri rammi lífsins verður að vera traustur til að líf ið megi blómstra, smáblóm lífsins geri meira en að undirbúa dauðann. Hugleiðing Sigurðar Árna á gamlársköldi - smellið á Ár og tár.
Áramótin í Neskirkju
Ertu tímamótamanneskja? Þetta er nú dálítið tvíræð spurning og gæti ýtt undir mikilmennskukennd hjá einhverjum. Sú er ekki ætlunin heldur er meiningin með henni þessi: Viltu halda upp á tímamótin í lífi þínu? […]
Stefánsdagur frumvotts og píslarvætti nú á dögum
Við þekkjum orðið píslarvottur helst af fréttum um múslima sem sprengja sjálfa sig í loft upp [. . .] Að gefa slíkum athöfnum nafnið píslarvætti er umdeilt innan islam og stenst engan veginn kristnar skilgreiningar. . .Úr prédikun Arnar Bárðar á 2. í jólum sem er hér:
Lykill að hinu heilaga
Guðspjallssagan er eins og lykill, sem opnar skrána að heilögu rými, sem við þorum stundum að kíkja inn í á jólum. Dýpst ristir í okkur þráin að nálgast eitthvað stórkostlegt, upplifa undur lífsins - og það getum við nefnt hið heilaga. Prédikun Sigurðar Árna á jólanótt er hér.
Heimsljós og Tate
Eru jólin þín sýning, sem varir aðeins um tíma? Tekur þú svo niður stjörnur og ljós og pakkar þér, jólabarninu í þér og dýpstu tilfinningum þínum niður í pakka, sem bíður næstu jóla? Prédikun Sigurðar Árna á jóladag er aðgengileg með því að smella á orðið Heimljós og Tate.
Prédikun sr. Arnar Bárðar á aðfangadag
Enn er þörf fyrir boðskap barnsins frá Betlehem og börn samtímans þarfnast elsku okkar sem nærist af elsku Jesú Krists. Það erum blikur í á lofti í samtímanum. Börnin okkar eru að mörgu leyti berskjölduð fyrir andelgum hroða og eitri sem ausið er yfir þau af markaðsöflum sem hafa fá [...]
Jólin í Neskirkju
Að venju verður helgihaldið ríkulegt yfir jólahátíðina. Á aðfangadag verða þrjár athafnir í Neskirkju, jólastund barnanna, aftansöngur og messa á jólanótt. Hátíðarmessur verða á jóladag og annan í jólum. Hin árlega jólakemmtun barnastarfsins verður einnig á annan í jólum. […]
Sálarþrif og iðrun
Guðspjallið varðar ekki Ajax, Þrif eða brúnsápu. Nú er komið að sálarhreinsun. Skúrum sálina, er boðskapur skírarans, gerum hana skínandi skýra. Iðrumst! Berum ávexti samboðna iðruninni. Prédikun þriðja sunnudags í aðventu er hér.
Messa og jólaundirbúningur
Við skúrum heimlin og nú er komið að sálarþrifum. Jóhannes skírari kallar eftir iðrun í guðspjalli þriðja sunnudags í aðventu. Kirkjuganga gerir þér gott. Allir eru velkomnir kirkju og ekki síst þú! […]
Trúfrelsi, vinátta, virðing
Öllum er væntanlega ljóst að ekki er gerð krafa um það til kennara eða annarra starfsmanna skóla að þeir gefi upp lífsskoðanir sínar við ráðningu. Foreldrar og nemendur treysta því að . . . Úr pistli Arnar Bárðar í Vesturbæjarblaðinu í desember.