Krossgötur haustið 2025

Janúar

12.
Torfi Tulinus, prófessorTorfi Tulinus, prófessor:

Áföll og kveðskapur í fornsögum: dæmi úr Eyrbyggja sögu.
Áfallafræðum hefur fleytt fram á undanförnum áratugum, m.a. vegna framfara í taugavísindum. Þó hafa menn lengi vitað að voveiflegir atburðir geta sett varanlegt mark á sálarlíf fólks. Konungs skuggsjá lýsir til dæmis ofsahræðslu á vígvelli og áhrifum þess á einstaklinginn. Í spjalli Torfa verður farið í saumana á hinum svokölluðu Máhlíðingamálum sem sagt er frá í Eyrbyggja sögu. Þar kemur til blóðugra átaka milli manna en sagan beinir athyglinni að tveimur persónum: Nagla, sem gripinn er ofsahræðslu og er rétt bjargað frá því að hlaupa fyrir björg, en fyrst og fremst að Þórarni Máhlíðingi.  Hann er friðsemdarmaður en bregst reiður við miklum yfirgangi nágranna síns og klýfur hann í herðar niður. Hann er í áfalli yfir eigin hegðun en vísurnar sem hann yrkir eftir á sýna í senn áfallið og hvernig hann vinnur smám saman úr því. 

19.
Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor hjá Árnastofnun:
Svo á jörðu sem á himni
Eddurnar og fornsögurnar eru áreiðanlegar heimildir um lifandi hefð á 13. og 14. öld þar sem heimsmynd og hvers kyns hugmyndum og þekkingu var miðlað með frásagnarlist í lausu máli og bundnu án þess að ritun kæmi við sögu. Sögur voru um staði og farleiðir sem sögupersónur fóru um og tengdust hver annarri með ýmsum hætti – og inn í aðrar sögur sem áheyrendur hafa þekkt til. Umhverfið, svo á jörðu sem á himni, kallaði á sögur af einstaklingum af þessum heimi eða úr veröld hetja, goða og vætta, og skýringar á því hvernig þeir tengdust í gegnum ættir, ástir og örlög. Þannig varð til stöðugt samspil þess sem lifandi fólk hafði fyrir augunum og þeirra persóna og atburða sem það gat sótt í þennan gagnvirka minnislykil sagnalistarinnar. Þær sögur og kvæði lögðu grunninn að hinum rituðu textum sem við köllum eddur og fornsögur og getum lesið á bókum. Með því að lesa fornbókmenntirnar undir þessu sjónarhorni opnast leið til að skilja þær sem hluta af lifandi þekkingarkerfi sem á sér djúpar rætur langt aftur fyrir þá menntun og lærdómshefð sem hingað barst frá meginlandinu og kveikti þá hugmynd að hægt væri að skrifa eitthvað af þeirri þekkingu á bók. Til dæmis verður Eddan kennd við Snorra mjög áreiðanleg heimild í þessu ljósi um það hvernig ungum skáldum á 13. öld var kennt að tengja sögur af goðum við himininn þar sem þær voru sviðsettar fyrir allra augum í heita pottinum í Reykholti – óháð því hvað segja má um trúarbrögð á Norðurlöndum fyrir kristni með þá sömu Eddu sem heimild.

26.
Þórunn Sigurðardóttir, prófessor emerita:
„Ég elskaði, ég missti mitt elskulegasta barn“
Um ástvinamissi á árnýöld

Viðbrögð við ástvinamissi eru talin mótast af sögulegum og menningarlegum þáttum. Í hverju samfélagi eru venjur og viðmið sem ákvarða hvernig skuli bregðast við andláti og missi, bæði opinberlega og í einkalífi. Á 17. öld var lögð áhersla á að syrgjendur stilltu sorgarviðbrögðum sínum í hóf og létu huggast í von um að hitta hinn látna ástvin á himnum. Raunar áttu syrgjendur að fagna því að hinn látni væri nú hólpinn í faðmi lausnarans, eins og fram kemur í ýmsum huggunarbókmenntum frá þessum tíma. Í fyrirlestrinum ætla ég að sýna fram á ákveðna togstreitu á milli hefðbundinnar huggunar vegna ástvinamissis og hinnar djúpu sorgar sem heltekur foreldra sem missa afkomanda sinn sem birtist í tveimur harmljóðum frá árnýöld. Annað kvæðið orti sr. Stefán Ólafsson í Vallanesi eftir bróðurson sinn og setur í orðastað föður unga mannsins. Hitt harmljóðið orti Brynjólfur Þórðarson Thorlacius eftir son sinn Skúla.

Febúar

2.
Sr. Skúli S. Ólafsson
Hugmyndir Marteins Lúthers (1483-1546) um sögu og framtíð.

9.
Einar Einarsson:
Jón biskup Arason í skrifum þjóðernissinna á 20. öld

Söguskoðun Íslendinga tók stakkaskiptum um miðja nítjándu öld. Túlkun ýmissa lykilþátta Íslandssögunnar á borð við gamla sáttmála (1262), siðaskiptin (1550) og Kópavogsfundinn (1662) breyttist frá því að vera hlutlaus eða fremur jákvæð yfir í það að vera þrungin neikvæðri merkingu. Í söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar voru siðaskiptin túlkuð sem upphaf útlendrar kúgunar og þar með þjóðlegrar niðurlægingar Íslendinga. Jón Arason Hólabiskup reyndi hvað hann gat til að veita konungsvaldinu viðnám á meðan siðaskiptunum stóð og var fyrir það gerður að eins konar þjóðardýrlingi u.þ.b. þremur öldum eftir að hann og synir hans voru teknir af lífi í Skálholti í nóvember 1550. Í erindinu verður fjallað um hvernig og af hverju viðhorfið til baráttu Jóns Arasonar og sona hans gegn siðbreytingunni umpólaðist í íslenskri sagnaritun frá Arngrími lærða til Jóns Jónssonar Aðils og Páls Eggerts Ólasonar.

16.
Gunnar Jóhannes Gunnarsson, prófessor emeritus

Sumarbúðir í Vatnaskógi í 100 ár
Sumarbúðir KFUM í Vatnaskógi urðu 100 ára árið 2023. Af því tilefni var gefið út veglegt afmælisrit þar sem saga og uppbygging starfsins er rakin í máli og myndum. Í erindinu verður fjallað um þróun sumarbúðanna í þessi 100 ár, frá því að vera tjaldútilega í nokkrar vikur á sumri, yfir í að vera öflug æskulýðsmiðtöð sem starfar árið um kring. Áhrif sjálfboðaliða, uppbygging aðstöðunnar og fjölbreytileiki starfsins verða meðal annars í brennidepli ásamt myndefni úr afmælisritinu. 

23.
Óli H. Þórðarson, fyrrum framkvæmdastjóri Umferðarráðs
,,Allt sem þér viljið…”
Hugsjónir baráttumanns fyrir bættum samskiptum í umferðinni og víðar
Óli H. Þórðarson lagði mikið af mörkum til að breyta hugarfari Íslendinga og hegðun á sviði umferðarmála. Vart er hægt að gera sér í hugarlund hversu mörgum mannslífum og miklum verðmætum barátta hans fyrir bættri umgengni á því mikilvæga sviði hefur skilað. Leiðarstef hans í þeirri baráttu var að vinna með hvatningu og jákvæðum skilaboðum fremur en að vanda um fyrir fólki.
Þegar hann hóf störf hjá Umferðarráði 1978 stjórnaði hann þætti í Ríkisútvarpinu, og þar óskaði hann eftir ábendingum um tillitssama ökumenn og bað hlustendur þannig að velja með sér „ökumann ársins“. Hann var síðan árum saman með þætti í útvarpinu þar sem hann miðlaði fróðleik og upplýsingum um umferðina á léttan og aðgengilegan hátt. Tillitssemi í umferðinni tengir hann við grunngildi kristninnar. Gullna reglan var leiðarljósið hans, en upphaf hennar er einmitt yfirskrift erindis Óla.  Óli H. hefur jafnan einsett sér að vinna að þeim viðfangsefnum sem gefa honum gleði og tilgang. Hann er lagahöfundur og hefur samið tónlist, meðal annars við þekkt bænavers. Hann segir okkur frá þessu hugðarefni sínu og ýmsu öðru, og við hlýðum á tónlist eftir hann.

Mars

2.
Hjalti Snær Ægisson, rannsóknarlektor við Árnastofnun
Sjóferðasögur heilags Brendans
Sjóferðasaga heilags Brendans hefur um langt skeið verið túlkuð hérlendis sem vitnisburður um „landnámið fyrir landnám“ og aðalpersónan gerð að nafngreindum fulltrúa þeirra írsku einsetumanna sem komu til Íslands löngu áður en samfelld byggð hófst. Staðreyndin er þó sú að Navigatio sancti Brendani er bókmenntaverk, blanda af helgisögu og rómönsu, og hefur að geyma ýmsar trúarlegar og táknrænar skírskotanir. Fjallað verður um textann í heild og rýnt í þær hugmyndir sem þar birtast um tíma og helgisiði.

9.
Æsa Sigurjónsdóttir, prófessor:
Gerður Helgadóttir og abstraktið í gleri og málmi
Þegar Gerður Helgadóttir  (1928-1975) kom til Parísar haustið 1949 þá varð hún fljótt þátttakandi í alþjóðlegum hópi listamanna sem setti mark sitt á þróun abstraktlistar eftirstríðsáranna. Rætt verður hvernig hugmyndir Gerðar um efni og andlega virkni birtast í verkum hennar, m.a. í  kirkjugluggunum sem hún vann fyrir Neskirkju.

16.
Magnús Lyngdal Magnússon, sagnfræðingur og tónlistargagnrýnandi:
Passíur Johanns Sebastians Bach.
Johann Sebastian Bach (1685-1750) starfaði lengst af í Leipzig (1723-1750) og sem kantor Tómasarkirkjunnar hafði hann með höndum skipulagningu kirkjutónlistar í fjórum höfuðkirkjum borgarinnar, Tómasarkirkjunni, Péturskirkjunni, Nikulásarkirkjunni og „Nýju kirkjunni“ (nefnd Matteusarkirkjan í dag). Þar samdi hann meðal annars tvær passíur sem kenndar eru við guðspjallamennina Jóhannes og Matteus (passían sem kennd er við guðspjallamanninn Markús er glötuð). Jóhannesarpassían (frá 1724) og Matteusarpassían (frá 1727) eru risavaxin kirkjutónverk sem tónskáldið samdi til flutnings á föstudaginn langa. Í báðum verkum er píslarganga Krists tónsett. Tónlistin í passíunum er byggð upp með svipuðum hætti og í um 200 kirkjukantötum sem Bach samdi og skiptist þannig ýmist í söngles eða aríur, kórþætti og sálmalög (kórala). Í erindinu verður fjallað um þessi tvö verk, tilurð þeirra og flutningshefð með tóndæmum. Þá verður einnig fjallað um helstu hljóðritanir á passíunum tveimur og kannað hvort túlkunarsaga verkanna hafi eitthvað breyst.

23.
Katelin Parsons
Kveðið í Vesturheimi: íslenskar rímur og rímnaskáld í Norður-Ameríku

Rímnaskáld og kvæðamenn voru meðal þeirra fjöldamörgu Íslendinga sem ákváðu að freista gæfunnar og fara vestur á síðustu áratugum nítjándu aldar og fyrstu árum þeirrar tuttugustu. Upptökur frá apríl 1940 af Sigurði Bárðarsyni hómopata (1851–1940) að kveða rímur á elliheimili í Kalifórníu fyrir tónlistarfræðinginn og þjóðlagasafnarann Sidney Robertson Cowell sýna að rímnahefðin lifði enn góðu lífi meðal innflytjenda. Tugir rímnahandrita finnast í Norður-Ameríku en einnig eru til dæmi um rímur eftir vesturfara sem hafa hvergi fundust. Í þessu erindi er grennslast fyrir um afdrif rímna og rímnaskálda vestan hafs.

24. (ath. þriðjudagur)
Heimsókn í Listasafn Árnesinga og Hveragerðiskirkju
Við setjumst svo að snæðingi á veitingastað.

30. (dymbilvika)
Svanhildur Óskarsdóttir, rannsóknarprófessor hjá Árnastofnun
Passíusálmar Hallgríms – list og túlkun
Í erindinu verður fjallað um form, braglist og inntak Passíusálmanna í ljósi túlkunar. Sálmarnir voru ortir til söngs en sterk hefð hefur myndast fyrir því að þeir séu lesnir upp, jafnvel í heild sinni. Rætt verður um mismun og samkenni upplestrar og söngs og tekin dæmi um þær kröfur sem list Passíusálmanna gerir til flytjandans.

Krossgötur haustið 2025

September

8.
Skúli S. Ólafson, prestur: Leikir og lærðir: Kirkjuleg forysta Sigurbjörns Einarssonar
Óhætt er að segja að skipan Sigurbjörns Einarssonar í embætti biskups, árið 1959, hafi markað tímamót í kirkjusögu 20. aldar. Hann átti eftir að hafa víðtæk áhrif á kirkju og íslenskt þjóðlíf. Sjálfur minntist hann þess í ævisögu sinni.

15.
Hjalti Hugason, kirkjusagnfræðingur: Pólitískar hugmyndir Sigurbjörns Einarssonar og Skálholtshugmyndafræðin
Í fyrirlestrinum verður fjallað um pólitísk afskipti Sigurbjörns Einarssonar á viðsjártímum. Einnig verður gerð grein fyrir tengslum þeirra við hugsjónir hans um kirkjulega og þjóðlega endurreisn Skálholts.

22.
Pálmi Jónasson, sagnfræðingur: Jónas Kristjánsson og náttúrulækningar í Hveragerði
Jónas Kristjánsson sór þess dýran eið að gerast læknir þegar móðir hans dó frá átta börnum í torfbæ í Svínadal árið 1881. Þá var hann 11 ára að aldri. Á síðari hluta ævinnar áttu náttúrulækningar hug Jónasar allan. Lífsstarfið var fullkomnað með opnun Heilsuhælisins í Hveragerði á 85 ára afmæli hans. Einstök saga af eldhuga sem barðist fyrir því að deyja frá betri heimi en hann þurfti að takast á við sem barn. Pálmi Jónasson, byggir verkið á aragrúa heimilda og dregur þannig upp eftirminnilega mynd af honum.

29.
Vigfús Bjarni Albertsson, prestur og rithöfundur: Sár græða sár: Í nærveru sorgar
Í bók sinni sem er sjálfstætt framhald af bókinni Hver vegur að heiman er vegur heim ræðir höfundurinn hvernig best megi nýta meðöl sálgæslunnar, möguleika hennar, en líka styrkleika okkar og veikleika. Umfram allt skiptir máli að við áttum okkur  á eigin stöðu í heimi áfalla og úrvinnslu.

Október:

6.
Sveinn Valgeirsson, Dómkirkjuprestur: Níkeujátningin
Liðin eru 1700 frá einu þýðingarmesta þingi sögunnar, kirkjuþinginu í Níkeu 325. Þá lagði Konstantín keisari í Róm það verkefni fyrir biskupa að komast að niðurstöðu í þeim guðfræðilegu ágreiningsmálum sem höfðu einkennt frumkirkjuna. Ekki tókst þó betur til en svo að frekari klofningur varð innan kristninnar. Sá hópur sem stóð eftir kom sér saman um játningu sem er ein af grundvallarjátningum flestra kirkjudeilda. Sr. Sveinn ræðir þessa atburði og fer yfir Níkeujátninguna svo nefndu.

13.
Ása Ester Sigurðardóttir, sagnfræðingur: ,,Guð blessi hvern þann mann, sem gerir eitthvað fyrir aumingja Ísland“
Þorbjörg Sveinsdóttir (1827–1903) var áberandi í kvennabaráttu nítjándu aldar á Íslandi. Hún var meðal þeirra kvenna sem stóðu fyrir stofnun Hins íslenska kvenfélags en það var fyrsta kvenfélagið á Íslandi sem hafði réttindi kvenna á stefnuskrá sinni. Í þessu erindi verður sjónum beint að Þorbjörgu sem baráttukonu, og þá einkum fyrir bættum kjörum kvenna í landinu. Hún var forystukona í Hinu íslenska kvenfélagi frá 1897 til dauðadags.

20.
Sveinn Magnússon, læknir: Ástand pilta í Hólavallaskóla á 18. öld
Farsóttir, harðindi og hallæri herjuðu endurtekiõ á Íslendinga á átjándu öld og léku heilsufar þjóðarinnar grátt. Skálholtsskóli var lagður niður 1784, eftir aldalanga starfsemi. Í stað hans var Hólavallarskóli settur á laggirnar i Reykjavik og tók hann til starfa 1786. Ýmsar frásagnir má finna um bágborinn aðbúnaõ nemenda í skólanum, ekki síst vegna þess hve skólabyggingin meõ heimavistinni var léleg. Í erindinu verður greint frá heilsufari nemendanna, einkum verður rakin skýrsla Sveins Pálssonar setts landlæknis, sem skoðaði alla piltana vorið 1804. Helsta sjúkdómsgreining hans er skyrbjúgur. Segja má að dapurleg lýsing Sveins Pálssonar á heilsufari skólapiltanna vegi þungt i þeirri ákvörðun yfirvalda að leggja skólann niður og flytja hann til Bessastaõa.

27.
Skúli S. Ólafson, prestur: Bændauppreisnin í Þýskalandi 1524–6
Fyrir 500 árum gerðu bændur í Þýskalandi uppreisn gegn yfirvöldum og kröfðust umbóta. Uppreisn þessi var brotin niður af mikilli hörku og kom siðbótarmaðurinn Marteinn Lúther þar meðal annars við sögu.

Nóvember

3.
Skúli S. Ólafson, prestur: Áhrifamesta bók Norðurlanda: Fræði Lúthers minni, 1525
Fræði Lúthers minni komu út í framhaldi af bændauppreisninni og má skoða tilurðarsögu þeirra í því ljósi. Fræðin eru öðru fremur útlegging á boðorðunum 10 en þar sem kemur að því fjórða leggur höfundur fram hugmyndir sínar um skipulag samfélaga, allt frá fjölskyldu til þjóðfélagsgerðar.

10.
Már Jónsson, prófessor: Þar var og í áflogum bitinn maður. Róstur í Reykjavík árið 1790
Árið 1801 bjuggu 460 manns í hinum unga kaupstað Reykjavík, þar á meðal allstór hópur Dana. Um bæinn hafði Sveinn Pálsson viðhaft þau orð níu árum fyrr að þar væru aðgerðarlausir bæjarbúarnir ,,að því komnir að éta hverir aðra sakir skorts á öllum nauðsynjum.“ Þó vildi hann hvergi annars staðar vera og bestu vinir hans bjuggu þar nærri, enda hafði hann verið við nám í Nesi við Seltjörn í fjögur ár, frá hausti 1783 til hausts 1787. Mikil gögn eru til um mannlíf á þessum árum á því sem nú nefnist höfuðborgarsvæðið, meðal annars óútgefin einkabréf sem Sveinn fékk send til Kaupmannahafnar á meðan hann var þar í námi, einkum frá árinu 1790. Merkastur bréfritara var unglingspilturinn Guðmundur Árnason sem var í fóstri í Nesi og lagði sig fram um að bera allt mögulegt slúður í Svein, sem greinilega hafði áhuga á slíku. Í erindinu verður greint frá helstu viðburðum, með sérstakri áherslu á slagsmál og annan ósóma.

17.
Sigurður Jónsson, prestur: Lesið í Leipzig
Sr. Sigurður segir frá námskeiðunum í kirkjusögu sem hann sótti á vetrarmisserinu 2024-2025, sem öll snertu þýska og evrópska kirkjusögu eftir siðbreytingu. Jafnframt bregður ljósi yfir sögu borgarinnar, sem Vilhjálmur Barbarossa gaf nafn í upphafi, en Leipzig þýðir heimkynni linditrjánna. J. S. Bach var þar kirkjuorganisti í áratugi sem vert er að nefna og hvílir í kór Tómasarkirkjunnar. Síðast en ekki síst má nefna mikilvægt hlutverk borgarinnar í aðdraganda falls Berlínarmúrsins, þar sem haldið var uppi vikulegum samkomum í Nikulásarkirkjunni árum saman á 9. áratugnum til stuðnings andófinu gegn ríkjandi stjórn kommúnista.

24.
Óttar Guðmundsson, læknir og rithöfundur: Jón Vídalín og samskipti hans við Odd lögmann Sigurðsson
Helstu valdamernn á Íslandi í upphafi 18. aldar voru þeir bræður Jón og Páll Vídalín og Oddur Sigurðsson lögmaður. Þeir bræður og Oddur elduðu löngum grátt silfur og allir drukku þeir stíft. Saga Íslands á þessum mótast af barnalegri og ábyrgðarlausri hegðun þessara höfðingja. Óttar mun rekja sögu þeirra og deilur og hvernig þessi átök höfðu áhrif á allt samfélagið.

Desember

1.
Sigurjón Árni Eyjólfsson, prestur: Þjóðerni og trú í verkum Sigurbjörns Einarssonar?
Í erindinu verður guðfræðileg áhersla Sigurbjörns skoðuð í samhengi við þann skilning á hlutverki lista sem bundið er við hugtakið Kunstreligion. 

8.
Haraldur Hreinsson, lektor: Sigurbjörn Einarsson í Svíþjóð
Sigurbjörn Einarsson lagði stund á nám í trúarbragðasögu í Uppsölum á árunum 1933-1937 og kynntist þar þeirri miklu grósku sem einkenndi hið fræðilega umhverfi á þeim tíma. Í erindinu verður fjallað um þessi mótunarár á ferli Sigurbjörns, helstu kennara og áhrifavalda, sem og hvernig hann fann þessum straumum farveg í störfum sínum innan Háskóla Íslands þegar heim var komið. Kynningin er hluti af rannsóknarverkefni um Uppsalaár Sigurbjörns sem unnið er í samstarfi við Ólaf Jón Magnússon, MA guðfræði.

 15.
 Sigríður Arnardóttir, fjölmiðlakona og stjórnendaþjálfari
,,Hringsólað um borgina í hálfa öld” skemmtilegt spjall í máli og myndum um höfuðborgina okkar, mannlífið og gríðarlegar breytingar í samskiptum og snertifletum borgarbúa. Sirrý Arnardóttir Reykvíkingur, fjölmiðlakona og stjórnendaþjálfari.