Hrafnkell Sigurðsson
Myndlistasýning með verkum Hrafnkels Sigurðssonar verður opnuð formlega á Kirkjutorgi sunnudaginn 13. mars. Messað er kl. 11:00 og ræðir sr. Skúli S. Ólafsson, sóknarprestur um verkin í predikun sinni. Að messu lokinni er boðið upp á kaffveitingar á Kirkjutorgi og þar ávarpar Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt og nefndarmaður í Sjónlistaráði Neskirkju, gesti og fjallar um sýninguna. [...]