Tónar og tal
Krossgötur miðvikudaginn 15. nóvember kl. 13.30. Áslaug Gunnarsdóttir, píanóleikar býður okkur að njóta tónlistar og fróðleiks, þar sem hún kynnir merkt tónskáld og flytur verk þess. Kaffiveitingar.
Krossgötur miðvikudaginn 15. nóvember kl. 13.30. Áslaug Gunnarsdóttir, píanóleikar býður okkur að njóta tónlistar og fróðleiks, þar sem hún kynnir merkt tónskáld og flytur verk þess. Kaffiveitingar.
Messa og sunnudagaskóli kl. 11 að venju. Félagar úr kór Neskirkju syngja í messunni og leiða söng við undirleik Maríu Kristínar Jónsdóttur. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudagaskólinn verður í umsjá Katrínar H. Ágústsdóttur og Ara Agnarssonar. Rebbi og Vaka kíkja við, Nebbi Nú læri eitthvað nýtt og það verður sungið og leikið. Hressing og [...]
Hádegistónleikar verða í Neskirkju miðvikudaginn 9. nóvember. Tónleikarnar eru á hálfsmánaðar fresti fram í desember þar sem boðið verður upp á Bach í bland við einn annan tónhöfund í hvert sinn. Steingrímur Þórhallsson organisti situr við orgelið.
Krossgötur miðvikudaginn 9. nóvembar kl. 13.30. Sigríður Haraldsdóttir, sviðsstjóri hjá landlæknisembættinu. Í doktorsrannsókn sinni, spurði Sigríður hvort munur væri á heilsufari Íslendinga eftir búsetu. Niðurstöður hennar varpa merkilegu ljósi á samfélag okkar og þær aðstæður sem landsmenn búa við. Kaffiveitingar.
Neskirkja efnir til þriggja fyrirlestra um barokkið næstu þriðjudagskvöld kl. 19.00. Tilefnið er afmæli siðaskiptanna á næsta ári auk þess sem dagskrá þessi er hugsuð sem ákveðinn upptaktur að sýningu Kristínar Gunnlaugsdóttur, Siðbót, sem opnuð verður 27. nóvember, næstkomandi. Þar vinnur listamaðurinn m.a. með barokkið. 8. nóvember: Skáldin Margrét Eggertsdóttir, rannsóknarprófessor við Árnastofnun fjallar um [...]
Málþing í Neskirkju, sunnudaginn 6. nóvember kl. 17:00 Jón biskup Helgason var einstakur maður og frumkvöðull í mörgum skilningi þess orðs. Hann var einn af merkisberum frjálslyndu guðfræðinnar á Íslandi og lagði sig fram um að innleiða nýjar hugmyndir og sjónarmið í íslenskt trúarlíf. Þegar Jón vísiteraði söfnuði, eins og biskupa var siður, tók hann [...]
Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Drengjakór Reykjavíkur syngur. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Stjórnandi og organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson. Umsjón með barnastarfinu hafa þau Stefanía, Katrín og Ari. Samfélag og kaffimoli eftir messu.
Krossgötur miðvikudaginn 2. nóvember kl. 13.30. Guðrún Kvaran, próf. em. við Stofnun Árna Magnússonar. Úgáfur á Biblíunni hafa haft mikil áhrif á þróun íslenskunnar. Guðrún Kvaran sat um áraskeið í þýðingarnefnd Biblíunnar en ný þýðing kom út fyrir nokkrum árum og voru skiptar skoðanir um þau sjónarmið sem þar lágu til grundvallar. Kaffiveitingar.
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Hljómur, kór eldri borgara í Neskirkju, syngur og leiðir söng undir stjórn Hildigunnar Einarsdóttur. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Texta dagsins má finna á vef Þjóðkirkjunnar. Sunnudagaskólinn verður í umsjá Stefaníu Steinsdóttur, Katrínar H. Ágústsdóttur og Ara Agnarssonar. Rebbi og Vaka kíkja [...]
Krossgötur 26. október kl. 13.30. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, prestur við Neskirkju. Megir þú lifa á áhugaverðum tímum. Saga konu í Kazakstan. Sr. Steinunn Arnþrúður, nýskipaður prestur við Neskirkju hefur farið víða og búið á fjarlægum slóðum. Hún valdi úr sarpi sínum, frásögn frá því er hún dvaldi í Kazakstan ásamt fjölskyldu sinni. Kaffiveitingar.