Fréttir

Fjölskyldumessa á æskulýðsdaginn

Á æskulýðsdaginn, þann 5. mars, verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 með þátttöku æskulýðsstarfsins. Barnakórar syngja undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur, undirleikari er Ari Agnarsson. Yfirskriftin er Trúum með hjartanu. Umsjón með guðsþjónustunni hafa Stefanía Steinsdóttir og sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Að guðsþjónustu lokinni býður æskulýðsfélagið upp á tertu í líki Neskirkju, sem félagar hafa bakað og er [...]

By |2017-04-26T12:23:06+00:002. mars 2017 18:18|

Tímamótakvöld í Neskirkju: Gerður Helgadóttir 

Fjallað verður um verk Gerðar Helgadóttur í Neskirkju fimmtudaginn 2. mars kl. 19:57 í tilefni af 60 ára afmæli kirkjunnar, sem var vígð árið 1957. Suðurglugginn í kirkjunni er meðal stærstu verka Gerðar og meðal síðustu verka hennar. Sýnt verður úr heimildarmynd um þennan kunna listamann og erindi flutt. Háskólakórinn syngur í upphafi. Dr. Skúli S. Ólafsson [...]

By |2017-02-28T15:59:19+00:0028. febrúar 2017 15:59|

Félag eldri borgara

Krossgötur miðvikudaginn 1. mars kl. 13.30. Gísli Jafetsson, formaður Félags eldri borgara kemur í heimsókn. Málefni eldri borgara varða okkur öll og fátt veitir betri innsýn í samfélagsgerð og siðferði en þjónustan við þau sem byggðu upp þau gæði sem síðari kynslóðir njóta. Gísli segir okkur frá verkefnum Félags eldri borgara. Kaffiveitngar.  

By |2017-02-27T14:25:45+00:0027. febrúar 2017 14:25|

Messa 26. febrúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Hljómur, kór eldri borgara í Neskirkju syngur. Stjórnandi Hildigunnur Einarsdóttir. Orgnisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Nebbi, Rebbi og Vaka koma í heimsókn, mikill söngur. Umsjón Stefanía og Ari. Samfélag á kirkjutorgi eftir messu og sunnudagaskóla.

By |2017-02-23T12:49:09+00:0023. febrúar 2017 12:49|

Heimsókn í Árbæjarsafn

Á Krossgötur 22. febrúar verður farið í heimsókn í Árbæjarsafnið og skoðuð sýningin Hjáverkin: Atvinnusköpun kvenna í heimahúsum. Helga Maureen Gylfadóttir, sagnfræðingur og Gerður Róbertsdóttir, verkefnastjóri munavörslu taka á móti hópnum. Lagt af stað í rútu frá Neskirkju kl. 13.30.

By |2017-02-20T13:59:11+00:0020. febrúar 2017 13:59|

Tímamótakvöld

Í tilefni 60 ára vígsluafmælis Neskirkju lítum við til baka og horfum í kringum okkur. Þrjár kvöldstundir fjöllum við um þennan helgidóm, sögu hans, útlit og innviði. Neskirkja markaði tímamót á ýmsan hátt, bæði hin nýja borgarsókn og svo hið móderníska útlit kirkjunnar. Þá er eitt af stærstu glerverkum Gerðar Helgadóttur að finna inni í [...]

By |2017-02-20T12:48:37+00:0020. febrúar 2017 12:37|

Biblíudagurinn og konudagurinn

Sunnudagurinn 19. febrúar er bæði Biblíudagur og Konudagur. Þann dag verður messa og sunnudagaskóli kl. 11. Við hefjum helgihaldið saman. Í predikun verður fjallað um Biblíuna og konur í tilefni dagsins. Kór Neskirkju syngur og leiðir söng. Organisti Douglas Brotchie. Prestur er sr. Steinunn A. Björnsdóttir. Barnastarfið er í umsjá Katrínar H. Ágústsdóttur, Ara Agnarssonar [...]

By |2017-04-26T12:23:06+00:0016. febrúar 2017 11:55|

Mannvirðing og umburðarlyndi

Krossgötur miðvikudaginn 15. febrúar kl. 13.00. Sigmundur Ernir Rúnarsson, fjölmiðlamaður og rithöfundur. Sigmundur Ernir á langan feril að baki í fjölmiðlum, stjórnmálum, ljóðagerð og öðrum ritsmíðum. Í þessu erindi ræðir hann sjónar-mið sín um mannleg samskipti og þau leiðarljós sem við ættum að fylgja í umgengni okkar við náungann.

By |2017-02-14T08:42:35+00:0014. febrúar 2017 08:42|

Messa 12. febrúar

Messa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju syngur. Orgnisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Nebbi, Rebbi og Vaka koma í heimsókn, mikill söngur. Umsjón Katrín, Heba og Ari. Samfélag á kirkjutorgi eftir messu og sunnudagaskóla.

By |2017-02-09T13:18:00+00:009. febrúar 2017 13:18|