IMG_2178Sunnudagurinn 19. febrúar er bæði Biblíudagur og Konudagur. Þann dag verður messa og sunnudagaskóli kl. 11. Við hefjum helgihaldið saman. Í predikun verður fjallað um Biblíuna og konur í tilefni dagsins. Kór Neskirkju syngur og leiðir söng. Organisti Douglas Brotchie. Prestur er sr. Steinunn A. Björnsdóttir. Barnastarfið er í umsjá Katrínar H. Ágústsdóttur, Ara Agnarssonar og Margrétar Hebu Atladóttur.
Sameiginleg hressing og samfélag á Kirkjutorgi að loknu helgihaldi. Þar verða til sýnist Biblíur af ýmsu tagi og bækur um biblíuna.