Fréttir

Pálmasunnudagur

Hátíðarmessa og barnastarf, kl. 11.00. Pálmasunnudagur er vígsludagur kirkjunnar og verður mikið um dýrðir. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingrímur Þórhallsson organista. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, gleði og gaman í sunnudagskólanumundir stjórn sr. Ásu Laufeyjar, Katrínar, Hebu og Ara. Kaffiveitingar og samfélag á Torginu eftir messu.

By |2018-03-22T13:01:35+00:0022. mars 2018 13:01|

Aqua María, Gjörningaklúbburinn

Á boðunardegi Maríu, sunndudaginn 25. marrs kl. 17 mun Gjörningaklúbburinn flytja gjörninginn Aqua María á Torginu í Neskirkju, þeim til aðstoðar verður kvennakórinn Hrynjandi. Gjörningaklúbburinn lýsir kveikjunni að gjörningnum á eftirfarandi hátt: „Skyndilega varð allt bjart á vinnustofunni, hún fylltist af ljósi og það tók að hellirigna þannig að litfagur og stór regnbogi myndaðist. Aqua María [...]

By |2018-03-22T14:10:36+00:0021. mars 2018 14:07|

Krossgötur

Krossgötur þriðjudaginn 20. mars kl. 13.00. Elín Elísabet, kennari: Jákvæð sálarfræði. Hvernig náum við fram því besta í fari okkar með réttu hugarfari?

By |2018-03-17T21:22:17+00:0017. mars 2018 21:22|

Messa 18. mars

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur og gleði í sunnudagskólanum. Umsjón Ása Laufey, Katrín Helga, Heba og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2018-03-15T10:48:54+00:0015. mars 2018 10:48|

Harpan

Krossgötur þriðjudaginn 13. mars kl. 13.00. Heimsókn í Hörpuna. Haldið verður í rútu frá Neskirkju og tekið á móti okkur í Hörpunni. Verð kr. 2000.

By |2018-03-12T11:02:19+00:0012. mars 2018 11:02|

Messa 11. mars

Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Söngur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín, Heba og Ari. Samfélag og kaffisopi eftir messu á Torginu.

By |2018-03-08T11:23:02+00:008. mars 2018 11:23|

Krossgötur

Söngur, sögur, vísnagátur og rjúkandi bakkelsi með kaffinu - allt þetta verður í boði á krossgötum þriðjudaginn 6. mars kl. 13:00. Að þessu sinni verður ekki flutt erindi en maður er manns gaman! Í hádeginu er boðið upp á súpu og brauð á sanngjörnu verði!

By |2018-03-05T13:53:03+00:005. mars 2018 13:53|

„Leyfið börnunum að koma…“

Stór börn og lítil athugið: Hin árlega æskulýðsmessa verður á sunnudaginn, 4. mars kl. 11 í Neskirkju. Fermingabörn vorsins leiða messuna í samvinnu við séra Ásu Laufeyju, æskulýðsfulltrúa og Katrínu Helgu. Barnakórar syngja undir stjórn Þórdísar Sævarsdóttur. Stórir sem smáir, aldnir sem ungir og litlar og stórar fjölskyldur. Við hlökkum til að sjá ykkur !

By |2018-03-02T18:01:39+00:002. mars 2018 17:59|

Messa 25. febrúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum syngja. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Gleði og gaman í sunnudagaskólanum. Umsjón Ása Laufey, Katrín, Heba og Ari. Samfélaga og kaffisopi eftir messu á Torginu.

By |2018-02-22T14:12:11+00:0022. febrúar 2018 14:11|