Fréttir

Opið hús

í opnu húsi miðvikudaginn 27. febrúar mun dr. Jón Bragi Bjarnason, prófessor í lífefnafræði í Háskóla Íslands segja frá vísindarannsóknum sínum og fjalla m.a. um „pensím“ sem hann útskýrir nánar og kallar erindi sitt „Að þora með slori“. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15 og byrjar með kaffiveitingum á Torginu.

By |2008-02-27T12:47:27+00:0027. febrúar 2008 12:47|

Kyrrðardagur í Neskirkju 1. mars

Hefur þú áhuga á andlegri heilbrigði þinni? Kyrrðardagar eru haldnir reglulega í Neskirkju við Hagatorg og henta sálarvinnu vel. Næsti kyrrðardagurinn verður laugardaginn 1. mars. Sigríður Hrönn Sigurðardóttir, guðfræðingur og sérfræðingur í kristinni íhugun, sér um hugleiðingar. Dagskrá hefst kl. 10 árdegis og lýkur um kl. 16. […]

By |2008-02-27T00:00:00+00:0027. febrúar 2008 00:00|

Messa 23. feb. kl. 11

Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Meðhjálpari Ursula Árnadóttir. Félagar úr messuhópi helgarinnar lesa ritningarlestra og fara með bæn. Börnin byrja í messunni en fara síðan til sinna starfa. Umsjón með barnastarfinu hafa þau Sigurvin Jónsson, Björg Jónsdóttir og Ari Agnarsson. Kaffi, súpa og brauð á Torginu eftir messu. [...]

By |2008-02-23T16:22:12+00:0023. febrúar 2008 16:22|

Saltfiskur á föstu-dögum

Lífið er saltfiskur. Alla föstudaga til 14. mars – verður boðið upp á saltfiskmáltíð í hádeginu á Kaffitorgi Neskirkju í tilefni föstunnar. Föstudaginn 22. febrúar mun Óskar Sævarsson, forstöðumaður Saltfisksetursins, koma og ræða við matargesti. […]

By |2008-02-21T00:00:00+00:0021. febrúar 2008 00:00|

Herdís Þorvaldsdóttir í Opnu húsi

Í Opnu húsi miðvikudaginn 20. febrúar mun Herdís Þorvaldsdóttir leikkona koma í heimskókn og spjalla um líf sitt og starf og rifja upp minningar frá löngum leikferli í Þjóðleikhúsinu og víðar. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15 og hefst með kaffiveitingum á Torginu.

By |2008-02-19T12:10:28+00:0019. febrúar 2008 12:10|

Febrúarmót ÆSKR og NeDó

Nú um helgina fór fram Febrúarmót ÆSKR í Vatnaskógi og komu þá saman tæplega 200 unglingar. Frá Neskirkju fór hópur unglinga og auk þeirra greiddi Neskirkja fyrir 5 eldri leiðtoga til að starfa á mótinu. Við erum sannarlega stollt af unga fólkinu okkar sem voru kirkjunni og hverfinu til sóma um helgina. […]

By |2008-02-19T11:58:22+00:0019. febrúar 2008 11:58|

Messa 17. febrúar

Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Sr. Kristján Valur Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið þar sem þau fá fræðslu við sitt hæfi. Umsjón með barnastarfinu hafa Björg Jónsdóttir og Ari Agnarsson. Kaffi, súpa og brauð eftir messu á [...]

By |2008-02-16T02:31:58+00:0016. febrúar 2008 02:31|

Vinsælt námskeið endurtekið: Postulasagan og upphaf kirkjunnar

Þriðjudaginn 12. febrúar kl. 19 hefst fræðslunámskeið í Neskirkju þar sem sr. Örn Bárður Jónsson mun fara í helstu stef Postulasögunnar. Fyrirkomulag verður það sama á og hinum vinsælu Alfanámskeiðum. Viltu fá að hlusta fyrsta kvöldið og sjá svo til? Vertu velkomin/n! Skráning í síma 511 1560 eða á neskirkja@neskirkja.is.Sjá nánar hér!

By |2008-02-11T00:00:00+00:0011. febrúar 2008 00:00|

Messa 10. febr. kl. 11 Freistingar og reynslupróf: Fallin/n!

Skírn í upphafi messu. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Meðhjálpari Ursula Árnadóttir. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr messuhópi helgarinnar lesa ritningarlestra og fara með bæn. Börnin byrja í messunni en fara síðan til sinna starfa. Umsjón með barnastarfinu hafa þau Sigurvin Jónsson, Björg Jónsdóttir og [...]

By |2008-02-09T08:45:35+00:009. febrúar 2008 08:45|

Opið hús

Gestur í Opnu húsi í Neskirkju miðvikudaginn 6. febrúar verður dr. Þuríður J. Kristjánsdóttir, fyrrum prófessor í sálarfræði í Kennaraháskóla Íslands, sem talar um Málfríði Einarsdóttur skáldkonu. Kaffiveitingar á Torginu. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15.

By |2008-02-05T11:43:30+00:005. febrúar 2008 11:43|