Messías í Neskirkju 5. og 8. desember 2009
Senn líður að tónleikum í Neskirkju. Messías eftir G.F. Händel verður fluttur á laugardag kl. 17 og aftur á þriðjudag kl. 20. Missið ekki af þessu einstaka tækifæri að hlusta á Messías í kirkjunni ykkar á aðventunni. Flytjendur eru Kór Neskirkju og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Einsöngvarar eru Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Jóhanna Halldórsdóttir alt, Gissur Páll Gissurarson [...]