Fréttir

Sunnudagsmessa og sýndarlíf

Kirkjan er fyrir þig og sunnudagsmessan er öllum opin. Messan 12. september hefst kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju og organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari og talar um ásýnd, sýndarsókn og Fjallræðu Jesú. Messuhópur þjónar, kaffi og samtal á Torginu eftir messu.

By |2010-09-09T11:55:00+00:009. september 2010 11:55|

Uppeldisnámskeið í Neskirkju – Uppeldi sem virkar

Miðvikudaginn 15. september hefst í Neskirkju uppeldisnámskeið sem að Helga Arnfríður sálfræðingur kemur til með að kenna. Námskeiðið ber heitið Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar en Helga hefur áralanga reynslu af kennslu slíkra námskeiða. Námskeiðið miðar að því að auka færni uppalenda og stuðla að nánari tengslum milli barna og foreldra en námskeiðið [...]

By |2010-09-08T10:43:17+00:008. september 2010 10:43|

Messa 5. sept. kl. 11 – Álagahamur og örlög, vantraust á tignarmenn, úrsagnir og samstaða

Messa og barnastarf kl. 11. Upphaf sunnudagaskólans. Börnin verða með í upphafi messunnar. Félagar úr kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar: Droplaug Guðnadóttir, Svanur Kristjánsson, Auður Styrkársdóttir og Kári Svansson. Meðhjálpari Rúnar Reynisson. Umsjón með barnastarfinu hafa þau Sigurvin, Lísbet, Andrea og Ari. Samfélag og kaffisopi eftir [...]

By |2010-09-05T07:47:52+00:005. september 2010 07:47|

Stúlknakór og Barnakór

Stúlknakór Neskirkju er fyrir 9 - 12 ára stelpur. Æfingar verða á miðvikudögum klukkan 14:30 - 15:30 og er fyrsta æfing 8. september. Barnakórinn er ætlaður börnum í 7 - 9 ára bekk. Æfingar verða á fimmtudögum kl. 14:00-14:45 og er fyrsta æfingin 9. september. Stjórnandi er Steingrímur Þórhallsson. Upplýsingar fást í síma 511-1560, hjá steini@neskirkja.is og [...]

By |2010-08-29T10:44:50+00:0029. ágúst 2010 10:44|

Kór Neskirkju – raddpróf

Kór Neskirkju getur bætt við sig nokkrum áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem vilja taka þátt í fjölbreyttu kórastarfi. Sækjumst sérstaklega eftir nokkrum bössum og sóprönum sem hafa einhverja söngreynslu eða mikinn metnað. Við hverjum þó alla áhugasama til þess að hafa samband. Kunnátta í nótnalestri er æskileg en þó ekki skilyrði fyrir gott fólk. Raddpróf [...]

By |2010-08-28T10:46:26+00:0028. ágúst 2010 10:46|

Messa 29. ágúst

Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Kári Allansson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Samfélag og kaffi á Torginu eftir messu.

By |2010-08-26T12:17:25+00:0026. ágúst 2010 12:17|

Sunnudagurinn 22. ágúst

Messa kl. 11. Fermingarbörn næsta vors ganga til altaris í fyrsta sinn ásamt sínu nánasta fólki en börnin hafa sótt námskeið s.l. viku. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Árna Þórðarsyni. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Kór Neskirkju leiðir söng. Messuþjónar úr hópi starfsfólks fermingarnámskeiðsins aðstoða. Kaffi og samfélag á Torginu [...]

By |2017-04-26T12:23:47+00:0019. ágúst 2010 11:31|

Messa sunnudaginn 15. ágúst

Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Samfélag og kaffi eftir messu á Torginu.

By |2010-08-13T16:15:44+00:0013. ágúst 2010 16:15|

Fermingarfræðslan að hefjast!

Sumarnámskeið hefst með sameiginlegum fundi fermingarbarna og foreldra þeirra eða forsjármanna í Neskirkju sunnudaginn 15. ágúst kl. 20. Fundað verður í kirkjunni. Þar verður efni og fræðslufyrirkomulag kynnt. Farið verður einnig yfir samvinnu kirkju og heimilis á þessum undirbúningsvetri. Upplýsingar verða afhentar um efni og mikilvægar dagsetningar. […]

By |2010-08-10T13:11:32+00:0010. ágúst 2010 13:11|