Messa kl. 11. Fermingarbörn næsta vors ganga til altaris í fyrsta sinn ásamt sínu nánasta fólki en börnin hafa sótt námskeið s.l. viku. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Árna Þórðarsyni. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Kór Neskirkju leiðir söng. Messuþjónar úr hópi starfsfólks fermingarnámskeiðsins aðstoða. Kaffi og samfélag á Torginu að messu lokinni. Ræðu Arnar Bárðar er hægt að lesa og líka hlusta á: Smelltu hér.