Fréttir

Hvað er líkt með Askasleiki, þér og Jóhannesi skírara?

Messa og barnastarf kl. 11 á 4. sunnudegi í aðventu. Sameiginlegt upphaf. Heldri Fóstbræður syngja og félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt með sr. Vigfúsi Ingvar Ingvarssyni. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag [...]

By |2011-12-17T09:37:30+00:0017. desember 2011 09:37|

Aðventustund miðvikudaginn 15. desember

Aðventukvöld kl. 20. Kór Neskirkju, Barna- og Stúlknakór Neskirkju og Hljómur, kór eldri borgara syngja. Stjórnendur Steingrímur Þórhallsson, Hilmar Örn Agnarsson og Magnús Ragnarsson. Sr. Sigurvin Jónsson æskulýðsprestur flytur hugvekju.

By |2011-12-15T11:45:53+00:0015. desember 2011 11:45|

Barnakór Neskirkju í útvarpið!

RÚV tók upp barnakór Neskirkju í vikunni en upptökurnar verða fluttar á RÚV á degi barnsins. Æskulýðsprestur Neskirkju leit inn í upptökur kórsins.

By |2017-04-26T12:23:35+00:0013. desember 2011 18:43|

Ljósamessa sunnudaginn 11. desember

Ljósamessa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Fermingarbörn lesa, leiða bænagjörð og tendra ljós. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Seld verða kerti [...]

By |2011-12-08T11:47:48+00:008. desember 2011 11:47|

Guð, söngur, snúðar og gleði

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakórar kirkjunnar syngja. Stjórnendur Hilmar Örn Agnarsson og Steingrímur Þórhallsson organisti. Sigurvin Jónsson, æskulýðsprestur,  sér um orð og sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar til borðs ásamt með unglingum. Eftir guðsþjónustu verður fjölskylduvæn og heilsusamleg veisla í safnaðarheimilinu. Allir velkomnir. Kirkjuferð á aðventu er dásamleg.

By |2017-04-26T12:23:35+00:002. desember 2011 10:54|

Lofsöngur Maríu – tónleikar 6. desember

MAGNIFICAT, Lofsöngur Maríu mun hljóma í Neskirkju við Hagatorg þriðjudagskvöldið 6. desember n.k. kl. 20:00. Á tónleikunum verða flutt tvö verk, Magnificat BWV 243 eftir Johann Sebastian Bach og Magnificat eftir Steingrím Þórhallsson sem verður frumflutt. Hér gefst tækifæri til að kynnast túlkun tveggja tónskálda á Lofsöng Maríu en tæplega 300 ár skilja að þessar [...]

By |2017-04-26T12:23:35+00:002. desember 2011 09:43|

Aðventudagatal LÆK

LÆK, Leiklistarfélag æskulýðsfélaga kirkjunnar, sem hefur aðsetur í Neskirkju hefur unnið aðventudagatal með 24 ,,gluggum" þar sem ungmenni deila jólaupplifun sinni. Jólin fyrir mér eru .... Dagatalið birtist daglega í smáglugga hér að ofan. Njótum aðventunnar saman.

By |2011-11-30T22:22:20+00:0030. nóvember 2011 22:22|

Önd mín lofar Drottinn

Opið hús miðvikudaginn 30. nóvember. Á aðventutónleikum kórs Neskirkju þriðjudaginn 6. desember verða flutt tvö verk, Magnificat eftir organista Neskirkju, Steingrím Þórhallsson og Magnificat J.S. Bach. Steingrímur skýrir verkin með tali og tónum. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15. og byrjar með kaffiveitingur á Torginu.

By |2017-04-26T12:23:35+00:0029. nóvember 2011 09:48|

Nýtt upphaf! Nýtt kirkjuár! Ný tækifæri!

Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11 og sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur. Einsöngur Ragnhildur Þórhallsdóttir. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Kór Neskirkju verður með kökubasar eftir messu. Samfélag og veitingar á Torginu. Ræðu Arnar Bárðar [...]

By |2017-04-26T12:23:36+00:0024. nóvember 2011 10:05|

Tónskáldið Grieg

Opið hús miðvikudaginn 23. nóvember. Grieg er þekktasta tónskáld Norðmanna. Áslaug Gunnarsdóttir mun skýra og spila sónötu hans í E-moll. Áslaug lærði píanóleik á Íslandi og í Þýskalandi og kennir píanóleik. Hún hefur boðist til að koma reglulega í opið hús til að kynna píanótónlist. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15 og hefst með kaffiveitingum [...]

By |2017-04-26T12:23:36+00:0022. nóvember 2011 09:51|