Ljósamessa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Fermingarbörn lesa, leiða bænagjörð og tendra ljós. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Seld verða kerti fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Prédikun Arnar Bárðar er hægt að hlusta á á þessari slóð.