Jólasöngvar

Fimmtudaginn 20. desember kl. 20 verður jólasöngstund í kirkjunni þar sem Kór Neskirkju, Barna- og Stúlknakór Neskirkju og Hljómur, kór eldri borgara syngja. Stjórnendur Steingrímur Þórhallsson og Jóhanna Halldórsdóttir. Einsöngur Ragnheiður Þórhallsdóttir. Eftir stundina verður boðið upp á kakó og piparkökur.

By |2012-12-18T11:11:52+00:0018. desember 2012 11:11|

Ljósamessa 3. sunnudag í aðventu

Ljósamessa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Fermingarbörn lesa, leiða bænagjörð og tendra ljós. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Halla, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Seld verða kerti [...]

By |2012-12-12T15:37:33+00:0012. desember 2012 15:37|

Syngdu með – Messías

Óratorían Messías eftir G.F. Händel verður flutt á tónleikum í Neskirkju sunnudaginn 9. desember kl. 17.00. Þetta eru svokallaðir „sing-along“ tónleikar en þá gefst tónleikagestum færi á að syngja með í kórköflum. Slíkar uppfærslur á Messíasi eru orðnar hefðbundnar víða um heim. Fjölmargir íslenskir kórar hafa sungið Messías á undanförnum árum og því er stór [...]

By |2017-04-26T12:23:29+00:006. desember 2012 11:15|

Annar sunnudagur í aðventu

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barna- og Stúlknakórar Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar og Jóhönnu Halldórsdóttur. Sr. Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir altari og æskulýðsprestur flytur hugvekju. Kaffiveitningar á Torginu eftir messu.

By |2012-12-06T11:15:23+00:006. desember 2012 11:15|

Aðventudagatal LÆK 2012

Krakkarnir í LÆK (leiklistarfélagi sem starfar með hléum í Neskirkju) settu saman í fyrra aðventudagatal með hugleiðingum þeirra um jólin. Í ár vildu þau endurtaka leikinn og því birtist á hverjum degi hugleiðing fram að jólum á Neskirkja.is. Hátíð kærleika og friðar!

By |2017-04-26T12:23:29+00:001. desember 2012 00:26|

Fyrstu sunnudagur í aðventu

Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11. Sameigninlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Sr. Sigurður Árni Þórðarsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Erni Bárði Jónssyni. Fermd verður Anna Sif Mogensen. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2012-11-29T13:36:58+00:0029. nóvember 2012 13:36|

Messa, Messías og jazz

Messa og barnastarf, sunnudaginn 25. nóvember kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Agnar Már Magnússon leikur jassspuna á píanóið. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng og syngur nokkra kórkafla úr Messías eftir Handel en kórinn flytur verkið 2. og 9. desember n.k. Organisti og stjórnandi Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður [...]

By |2012-11-22T13:16:52+00:0022. nóvember 2012 13:16|

MESSÍAS 2. og 9. desember í Neskirkju

Kór Neskirkju æfir af kappi þessa dagana og undirbýr sig undir að flytja óratóríuna Messías eftir G.F. Händel á tvennum tónleikum í Neskirkju í byrjun desember.  Fyrri tónleikarnir eru 2. desember og verða þeir með hefðbundnu sniði en síðari tónleikarnir sunnudaginn 9. desember eru svokallaðir  „sing-along“ tónleikar.  Þá gefst tónleikagestum færi á að syngja með í kórköflum. [...]

By |2017-04-26T12:23:29+00:0022. nóvember 2012 09:35|