Skírdagskvöld er ekki aðeins messukvöld í Neskirkju við Hagatorg heldur verður einnig boðið til máltíðar í anda síðustu máltíðar Jesú Krists. Hráefni í margrétta kvöldverði tekur mið af samhengi hennar. Ósýrt brauð, bitrar jurtir, fiskur og lambakjöt verða á borðum, saga Jesú íhuguð og tengd við upplifun og líf nútímafólks. Máltíðin hefst kl. 17,45. Miðar eru seldir á midi.is  Tvenn hjón undirbúa þessa upplifunarmáltíð. Meistarakokkarnir og veitingahjónin Friðrik V. og Arnrún Magnúsdóttir sjá um eldamennskuna og prestshjónin Elín Sigrún Jónsdótir og Sigurður Árni Þórðarson tengja skynjun og skírdag, himin og jörð. Maturinn heillar nef, munn og maga og matarguðfræðin er fyrir sálina.

Pamela di Sensi mun laða fram Miðjaraðarhafsstemmingu með flautuleik sínum.

Kvöldmáltíðin verður í safnaðarheimili Neskirkju. Kl. 20 hefst svo skírdagsmessa í Neskirkju. Í lok hennar verða altarisgripir bornir úr kirkju og rósir lagðar á altarið.