Fréttir

Messa 10. nóvember

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2013-11-07T10:40:00+00:007. nóvember 2013 10:40|

Af kvikum myndum og maurum.

Krossgötur miðvikudaginn 6. nóvember kl. 13.30. Lárus Ýmir Óskarsson er kvikmyndagerðarmaður og aktívisti. Hann ræðir um kvikmyndagerð og tjáningu með kvikum mynd-um. Hann tók þátt í Mauraþúfunni sem vann að þjóðfundinum sem setti fram hugmyndir um betra og réttlátara samfélag. Að læra af náttúrunni og yfirfæra það á mannlífið. Þátttaka í þjóðfélagsumræðunni. Hvernig eru ákvarðanir teknar? Hvernig [...]

By |2013-11-05T09:24:08+00:005. nóvember 2013 09:24|

Dagur látinna er dagur lífs. Hver varð þér vitringur? Var eitthvert þeirra sem kenndi þér að spenna greipar og tala við Guð eins og vin? Var eitthvert þeirra sem varð þér hlýr faðmur, skjól og hálsakot sem þú áttir víst í flóknum heimi? Prédikun Sigurðar Árna á allra heilagra messu 3. nóvember 2013 er að [...]

By |2017-04-26T12:23:23+00:004. nóvember 2013 16:23|

Messa 3. nóvember – allra heilagra messa

Messa og barnastarf kl. 11. Allra heilaga messa. Minnst verður látinna ástvina í prédikun og bænagerð. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Einsöngur Davíð Ólafsson nemi í Söngskólanum. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt með sr. Toshiki Thoma. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, [...]

By |2013-10-31T16:29:51+00:0031. október 2013 16:29|

Davíð Stefánsson, ljóð hans líf

Krossgötur - Opið hús, miðvikudaginn kl. 13.30 miðvikudaginn 30. október. Gunnar Stefánsson, útvarpsmaður, hefur dálæti á ljóðlist skáldsins frá Fagraskógi, talar um það og túlkar list Davíðs. Kaffiveitingar á Torginu.

By |2013-10-29T11:40:44+00:0029. október 2013 11:40|

Málmhaus – boðið til samtals

Nýjasta kvikmyndin Ragnars Bragasonar Málmhaus fjallar m.a. um sorg og afleiðingar hennar. Presturinn í myndinni gegnir lykilhlutverki í samskiptum, samtölum og flæði myndarinnar. Hann er áhugaverð týpa og farvegur agaðs stuðnings og blessunar – sem prestar eru jafnan í störfum sínum. Ég hafði samband við Ragnar og hann hafði áhuga að ræða um myndina. [...]

By |2013-10-29T11:29:35+00:0029. október 2013 11:29|

Messa 27. október

Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey og Ari. Samfélag, súpa og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2013-10-24T15:55:59+00:0024. október 2013 15:55|

Mið-org viku-el dags-tónar

Steingrímur Þórhallsson, organisti Neskirkju, verður með fjórðu hádegistónleikanna sína í yfirferð sinn á fimmta hefti orgelverka Bach, „Praeludien, Toccaten, Fantasien und Fugen I" miðvikudaginn 23. október kl. 12.00 í kirkjunni. Komið er að tveimur stórvirkjum orgelbókmenntana, Dórísku tökkötunni (m. fúgu) og svo stóra e - moll prelúdían og fúgan. Þessi verk eru að mörgu leiti afar sérstök [...]

By |2013-10-22T11:50:16+00:0022. október 2013 11:50|

Frelsið í ófrelsinu

Krossgötur - Opið hús miðvikudaginn 23. október kl. 13.30. Hreinn Hákonarson er fangaprestur og mun ræða um starfs sitt. Hvernig er staðið að málum fanga í landinu? Hvernig er kirkjunni tekið í heimi hinna ófrjálsus? Samtal.

By |2013-10-22T11:37:10+00:0022. október 2013 11:37|

Málmhaus

Kirkjubruninn varð mér til íhugunar um hlutverk kirkju á Íslandi. Hera tók út reiði sína á Guði með því að brenna kirkjuna sem pabbi og mamma hennar sungu í, bróðir hennar var jarðsunginn frá og þar sem myndin af Kristi horfði á hana. Hugleiðing Sigurðar Árna í messunni 20. október er að baki báðum þessum [...]

By |2017-04-26T12:23:24+00:0020. október 2013 14:44|