Messa á jóladag
Hátíðarmessa kl. 14.00. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Hátíðarsöngvar sungnir. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Ræðu Arnar geturðu hlustað á og lesið hér.
Hátíðarmessa kl. 14.00. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Hátíðarsöngvar sungnir. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Ræðu Arnar geturðu hlustað á og lesið hér.
Aðfangadagur 24. desember Jólastund barnanna kl. 16.00 Umsjón með stundinni hafa starfsmenn barnastarfsins. Barna- og Stúlknakór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur dr. Sigurður Árni Þórðarson Aftansöngur kl. 18.00 Einsöngur Hallveig Rúnarsdóttir. Trompet Steinar Kristinsson. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Jólanótt kl. 23.30 Háskólakórinn syngur. [...]
Á aðfangadag verður jólastund barnanna kl. 16., aftansöngur kl. 18. og miðnæturmessa kl. 23.30. Á jóladag er hátíðarmessa kl. 14. Á örðum í jólum er síðan hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Sjá nánar dagskrána hér!
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.
Krossgötur miðvikudaginn 18. desember kl. 13.30. Steingrímur Þórhallsson er organisti Neskirkju. Hann kemur og hitar okkur upp með aðventu- og jólasöngvum. Barnakór kemur í heimsókn. Kaffiveitingar á Torginu.
Fram koma; Barnakór Neskirkju, Stúlknakór Neskirkju, Hljómur – kór eldri borgara og Kór Neskirkju. Stjórnendur Jóhanna Halldórsdóttir og Steingrímur Þórhallsson. Eftir stundina verður boðið upp á kakó og piparkökur. Aðgangur er ókeypis!
Krossgötur miðvikudaginn 11. desember kl. 13.30. Sigurður Gizurarson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi sýslumaður, segir frá. Kaffiveitingar á Torginu.
Fram koma Kór Neskirkju og Stúlknakór Neskirkju ásamt básúnuleikurum. Stjórnandi er Steingrímur Þórhallsson organisti kirkjunnar. Á tónleikunum verður flutt tónlist tengd jólum allt frá þekktum jólasálmum á borð við „Það aldin út er sprungið“ og „Hin fegursta rósin er fundin“ yfir í verkin „O Magnum Mysterium“ eftir Morten Lauridsen og „Lux Aurumque“ eftir Eric Whitacre. Á efnisskránni [...]
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barna- og Stúlknakór Neskirkju syngja undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur og Steingríms Þórhallssonar organista. Ása Laufey Sæmundsdóttir, umsjónarmaður barnastarfsins leiðir stundina ásamt sr. Erni Bárði Jónssyni. Samfélag og kaffi á Torginu eftir messu.
Sjöundu og síðustu Bach hádegistónleikarnir Steingríms Þórhallssonar þetta haustið verða miðvikudaginn 4. desember. Síðustu þrjár prelúdíurnar og fúgurnar úr heildarútgáfu af Bach, fyrra heftinu, BWV 536 A dúr, BWV 543 a moll (afar glæsileg og spennandi stykki) og BWV 536 A dúr, eru á dagskrá og þar með er fimmundahringnum lokað. Tónleikarnir hefjast kl. 12.00 og [...]