Saltfiskur á föstudögum á föstunni
Föstudagar á föstu eru saltfiskdagar í Neskirkju. Matur er fram reiddur kl. 12. Og svo verður fram að dymbilviku. Suðrænn saltfiskréttur á 1.700 krónur með ofnbökuðum rótarávöxtum.
Föstudagar á föstu eru saltfiskdagar í Neskirkju. Matur er fram reiddur kl. 12. Og svo verður fram að dymbilviku. Suðrænn saltfiskréttur á 1.700 krónur með ofnbökuðum rótarávöxtum.
Krossgötur miðvikudaginn 25. febrúar kl. 13.30. Sr. Sveinn Valgeirsson nágrannaprestur okkar úr Dómkirkjunni hefur rannsakað kirkjufeður fornkirkjunnar og mun ræða þátt þeirra í mótun tilbeiðslu kirkjunnar. Kaffiveitingar.
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Birgir Ásgeirsson setur dr. Skúla S. Ólafsson í embætti prests í Neskirkju, sem predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Andrea, Katrín og Ari. Sóknarnefnd býður til [...]
Hinir árlegu saltfiskdagar Neskirkju hefjast í hádeginu föstudaginn 20. febrúar kl. 12-13 og standa 6 föstudaga í röð. Boðið verður upp á suðrænan saltfisk. Máltíðin verður seld gegn vægu verði. Fastan er tími íhugunar og tiltektar í sál og sinni. Njótum föstunnar og höldum í gamlar hefðir.
Krossgötur miðvikdaginn 18. febrúar kl. 13.30. Ferðasögur frá gönguferðum á helgum slóðum á Norður Spáni og víðar. Margrét Jónsdóttir doktor í spænskum bókmenntum segir frá. Kaffiveitingar.
„Þó niðurstaða hinnar trúarlegu leitar sé ólík er ekki hægt annað en að bera virðingu fyrir þeirri viðleitni sem Jón Gnarr lýsir í grein sinni og það mættu fleiri taka sér til fyrirmyndar. Alhæfingar hans um trú og trúarbrögð eru hinsvegar þess eðlis að þeim ber að svara.” Prédikun Sigurvins sunnudaginn 15. febrúar er að [...]
Sunnudaginn 15. febrúar, í kjölfar messu sem hefst kl. 11 verður sýning Einars Garibaldi, Impression, opnuð á Torginu. Um sýninguna segir Einar: „Fyrirmynd verkanna á sýningunni er að finna á götukorti af Reykjavík, en þar hafa nokkrir áhugaverðir staðir í borginni verið dregnir fram með lítilli þrívíddarmynd. Einn þessara staða er Neskirkja og hefur þessi litla og [...]
Messa og barnastarf á Biblíudaginn kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Andrea, Ásta Kristensa og Ari. Eftir messu verður sýning Einars Garibaldi, Impression, opnuð á Torginu.
Krossgötur kl. 13.30 miðvikudaginn 11. febrúar. Sálmabókin. Margrét Bóasdóttir er verkefnistjóri Biskupsstofu á sviði kirkjutónlistar og mun ræða um þátt söngsins í kristinni tilbeiðslu. Kaffiveitingar.
Messa og barnastarf á Biblíudaginn kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Katrín Helga og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu. Fulltrúar frá Gídeon munu gefa fermingarbörnum Nýja [...]