Fréttir

Iðar alheimurinn af lífi?

Prédikun sunnudagsins 26. júlí fjallaði um leitina að lífi í geiminum og þær spurningar sem hún vekur um ábyrgð okkar í garð lífríki jarðar. ,,Kristin trú og kennsla Jesú krefur okkur um að líta á heildarmyndina um stöðu mannkyns og boðar að þegar öllu er á botninn hvolft þá erum við á sama báti. Geimferðaráætlanir [...]

By |2017-04-26T12:23:14+00:0026. júlí 2015 23:50|

Kross, hamar og sigð

Prédikun síðasta sunnudags fjallaði um frelsunarguðfræði Suður-Ameríku og ábyrgð kirkjunnar gagnvart fátækum í heiminum. Kveikjan var gjöf Evo Morales til Frans Páfa en hann færði honum róðu festa á hamar og sigð. Prédikun Sigurvins Lárusar Jónssonar má lesa á vefslóðinni tru.is.

By |2017-04-26T12:23:14+00:0020. júlí 2015 10:55|

Messa á sunnudaginn

Á sunnudaginn verður messa að venju kl. 11 en Sigurvin Lárus Jónsson er prestur og Steingrímur Þórhallsson organisti. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Athvarf að sumri í kirkjunni þinni.

By |2015-07-09T12:54:50+00:009. júlí 2015 12:54|

Blómatónleikar

Miðvikudagskvöldið 3. júní býður Kór Neskirkju til vortónleika í kirkjunni kl. 20.00. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana og er öllum velkomið að koma og hlýða á fallega kórtónlist. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni af tónleikaferð kórsins til Ítalíu og verður efnisskrá fyrirhugaðra tónleika á Ítalíu flutt. Á efnisskránni kennir margra grasa og eru kórfélagar á [...]

By |2017-04-26T12:23:14+00:001. júní 2015 21:36|

Skráning í fermingarfræðslu hefst 1. júní

Fermingarbæklingur hefur verið sendur í hús til ungmenna sem búa í sókninni og eru skráð í Þjóðkirkjuna. Athugið að öll ungmenni eru velkomin í fermingarfræðslu Neskirkju óháð trúfélagaaðild, trúarafstöðu og búsetu. fermingar2015

By |2017-04-26T12:23:14+00:0029. maí 2015 12:59|

Viska Guðs og heilög önd.

Hátíðarmessa á Hvítasunnudag kl. 11. Kór Neskirkju syngur hátíðartón undir stjórn Steingríms Þóhallssonar. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sigurvin hefur rannsakað visku Guðs í forn-kristnum bókmenntum en sú hugmynd varðar daglegt trúarlíf og kraftinn til að lifa í nýjum lífstakti. Kaffi á Torginu að lokinni messu.

By |2017-04-26T12:23:15+00:0023. maí 2015 10:51|

Gleðilegt sumar.

Í dag var haldin uppskeruhátíð sunnudagaskólans. Fjölmargir lögðu leið sína í Neskirkju og hlýddu á Barnakór og Stúlknakór Neskirkju syngja og til að gleðjast með starfsfólki sunnudagaskólans. Í garðinum voru hoppukastalar og pylsugrill fyrir alla sem vildu. Gleðilegt sumar og við hlökkum til nýs skólaárs sem hefst í byrjun september.

By |2015-05-17T22:28:21+00:0017. maí 2015 22:28|

Vorhátíð sunnudagaskólans 17. maí.

Á sunnudaginn verður uppskeruhátíð sunnudagaskólans. Barnakór og Stúlknakór Neskirkju syngja og báðir prestar kirkjunnar þjóna. Að lokinni guðsþjónustu verða grillaðar pylsur í garðinum og hoppukastalar settir upp fyrir börnin. Gleðjumst saman í kirkjunni okkar.Plakat

By |2017-04-26T12:23:15+00:0015. maí 2015 00:31|

Meira maður

Hér má lesa predikun uppstigningardags í Neskirkju. ,,Páll heitinn Skúlason, sem jarðsunginn var í síðustu viku, ræddi gjarnan það hlutverk samfélags að þroska manneskjuna og efla hana. Hann leit einmitt til þess tilgangs sem bíður okkar dauðlegra manna og hvernig við ættum í sífellu að rækta hug okkar og anda til þess að geta mætt [...]

By |2017-04-26T12:23:15+00:0014. maí 2015 23:39|

Vortónleikar Hljóms, Kórs eldri borgara í Neskirkju

Laugardaginn 16. maí kl. 17:00 eru hinir árlegu vortónleikar Hljóms, Kórs eldri borgara í Neskirkju. Sérstakur gestur tónleikanna er Gissur Páll Gissurarson, tenór. Steingrímur Þórhallsson leiðir kórinn. Allir eru velkomnir! Aðgangur er ókeypis!

By |2017-04-26T12:23:15+00:0013. maí 2015 23:29|