Krossgötur mánudaginn 9. nóvember kl. 13.00. Sólveig Anna Bóasdóttir, prófessor emerita, fjallar um fyrirgefninguna. Oft er vísað til þess að fyrirgefningin sé hin kristilega lausn. Sólveig Anna Bóasdóttir ræðir þau mál í þessum fyrirlestri sínum og bendir á hvaða nauðsynlegu forsendur hljóti að búa að baki því að unnt sé að veita fyrirgefningu. Ef gerandinn viðurkennir hvorki verknað sinn né reynir að bæta fyrir brot sitt ættum við, með stuðningi Nýja testamentisins, að sleppa öllu tali um fyrirgefningu.