Krossgötur mánudaginn 19. október kl. 13.00. Haraldur Hreinsson, dósent í kirkjusögu, verður með fyrirlestur sem fjallar um vöxt og viðgang mótmælendakristni á Færeyjum og Grænlandi. Þeirri sögu vindur fram á ólíkum tímabilum í tilviki hvors lands fyrir sig: Siðbreytingin barst til Færeyja á svipuðum tíma og á Íslandi, þ.e. um miðja 16. öld en mun síðar á Grænlandi, þ.e. á fyrri hluta 18. aldar þegar trúboðshreyfingar frá Danmörku og Þýskalandi létu til sín taka á þeim slóðum. Fjallað verður um bakgrunn þessarar atburðarásar, helstu viðburði hennar og mikilvæga leikendur.