Stefán Pálsson sagnfræðingur verður með fyrirlestur á Torginu í Neskirkju kl. 20.00 föstudaginn 18. júní. Árið 1926 kom fjölskylda til Íslands frá Danmörku með vísi að dýragarði meðferðis. Þau komu sér fyrir í Laugarnesinu og síðar inni við Elliðaár. Næstu misserin átti fólkið eftir að vekja nokkra athygli Reykvíkinga og raunar víðar um landið. Helstu heimildir eru afar brotakenndar smáfregnir í dagblöðum – raunar furðu fáar miðað við hversu óvenjulegir gestir voru á ferðinni og fáein bréf milli opinberra aðila sem töldu sig þurfa að hafa afskipti af starfsemi á þeirra vegum. Því var slegið föstu að um sígauna væri að ræða en hafa ber í huga að vitneskja landsmanna um Roma-fólk var lítil sem engin og öll hugtakanotkun mjög á reiki. Hvernig stóð á ferðum fjölskyldu þessarar til Íslands? Hvaða upplýsingar – ef nokkrar – er unnt að finna um fólkið? Stefán Pálsson hefur haldið þennan fyrirlestur nokkrum sinnum og býður nú öllum sem hlýða vilja að mæta á Torgið í Neskirkju, fimmtudagskvöldið 18. júní og hlusta á þessa mögnuðu og makalausu sögu. Húsið verður opnað laust fyrir kl. 20 og fyrirlesturinn hefst ekki seinna en kortér yfir! Ekki mæta seint! Erindið sjálft er á bilinu 30-40 mínútur. Vinir og velunnarar mega svo sitja áfram að erindi loknu og skrafa frameftir kvöldi. Heitt á könnunni. Öll velkomin meðan húsrúm leyfir.