Fimmtudaginn 14. maí kl. 9:30, uppstigningardag, verður okkar árlega Neskirkjuhlaup. Allir eru hjartanlega velkomnir að taka þátt hlaupið er 10 km, en hægt er að stytta vegalengdina. Eftir hlaupið verður heilnæm hressing í kirkjunni.

Sunnudaginn 17. maí verður vorhátíð sunnudagaskólans kl. 11. Hátíðin hefst með helgistund, þar sem Styrmir Örn Guðmundsson, verður með tónlistargjörning og spilar vorlög á trommu. Að henni lokinni verður farið út í garðinn. Þar verða hoppukastalar og andlitsmálning auk þess sem pylsur verða grillaðar ofan í gesti. Allir velkomnir!