Krossgötur 30. mars kl. 13.00. Svanhildur Óskarsdóttir, rannsóknarprófessor hjá Árnastofnun: Passíusálmar Hallgríms – list og túlkun. Í erindinu verður fjallað um form, braglist og inntak Passíusálmanna í ljósi túlkunar. Sálmarnir voru ortir til söngs en sterk hefð hefur myndast fyrir því að þeir séu lesnir upp, jafnvel í heild sinni. Rætt verður um mismun og samkenni upplestrar og söngs og tekin dæmi um þær kröfur sem list Passíusálmanna gerir til flytjandans. Kaffiveitingar.