Tónleikar laugardaginn 21. mars kl. 17.00. Steingrímur Þórhallsson, organisti Neskirkju í Vesturbæ Reykjavíkur leikur öll orgelverk J. S. Bach og eru þetta tólftu tónleikarnir í röðinni. 21. mars er fæðingardagur J. S. Bach og gaman að geta haldið tólftu tónleikana á þeim degi. Á efnisskrá verður meðal annars; Prelúdía og fúga á g moll BWV 535, Prelúdía og fúga í A dúr BWV 536, Kóralpartíta um sálminn Christ, der du bist der helle Tag BWV 766, Tríó sónata í e moll BWV 528. Og síðast en ekki síst, Tokkata og fúga í d moll BWV 565 (Stairway to heaven organistanna). Með umfjöllun um hvort verkið sé eftir Bach eða ekki! Aðgangur ókeypis.