Sunnudaginn 8. mars kl. 17.00. Steingrímur Þórhallsson, organisti Neskirkju, leikur öll orgelverk J. S. Bach og eru þetta elleftu tónleikarnir í röðinni.
Á efnisskrá verður meðal annars
Hin fræga Prelúdía og fúga í a moll BWV 543
Nun danket Alle Gott BWV 657
Jesu Christus, unser Heilda BWV 665 & 666
Umritun Bach á tríósónötu eftir Johann Friedrich Fasch BWV 585
Prelúdía og fúga í A dúr BWW 536