Krossgötur mánudagurinn 13. október kl. 13.00. Ása Ester Sigurðardóttir, sagnfræðingur: ,,Guð blessi hvern þann mann, sem gerir eitthvað fyrir aumingja Ísland“. Þorbjörg Sveinsdóttir (1827–1903) var áberandi í kvennabaráttu nítjándu aldar á Íslandi. Hún var meðal þeirra kvenna sem stóðu fyrir stofnun Hins íslenska kvenfélags en það var fyrsta kvenfélagið á Íslandi sem hafði réttindi kvenna á stefnuskrá sinni. Í þessu erindi verður sjónum beint að Þorbjörgu sem baráttukonu, og þá einkum fyrir bættum kjörum kvenna í landinu. Hún var forystukona í Hinu íslenska kvenfélagi frá 1897 til dauðadags. Kaffiveitingar.