Krossgötur mánudaginn 16. febrúar kl. 13.00. Dr. Gunnar Jóhannes Gunnarsson fjallar um sögu og áhrif sumarbúðianna í Vatnaskógi. En sumarbúðir KFUM og KFUK urðu 100 ára árið 2023. Af því tilefni var gefið út veglegt afmælisrit þar sem saga og uppbygging starfsins er rakin í máli og myndum. Í erindinu verður fjallað um þróun sumarbúðanna í þessi 100 ár, frá því að vera tjaldútilega í nokkrar vikur á sumri, yfir í að vera öflug æskulýðsmiðstöð sem starfar árið um kring. Áhrif sjálfboðaliða, uppbygging aðstöðunnar og fjölbreytileiki starfsins verða meðal annars í brennidepli.