Sunnudagskvöld 16. nóvember kl. 20:00 verður ljóðakvöld.
Sunna Dís Másdóttir les úr bók sinni, Postulín þar sem hún gerir upp atburði og áföll úr eigin lífi en yrkir líka um skrásetningu sögunnar, minningar og það sem mótar okkur mennina sem getum verið svo lítil og vanmáttug gagnvart miskunnarleysi náttúrunnar en líka svo máttug og áhrifamikil, tegund sem færir fjöll.
Hallgrímur Helgason les úr bók sinni, Drungabrim í dauðum sjó: Kvæði fyrir ókvæða öld. Í bókinni mætast hið persónulega og pólitíska, innileiki og ádeila, mýkt og harka í skáldskap sem kviknar jafnt af barneignum og jarðarförum sem og bankahruni og þjóðarmorði. Skáldið bruggar seið úr hefðum fortíðar og kenndum samtíðar og blandar ýmist með húmor eða trega.
Steindór Jóhann Erlingsson les úr bók sinni Hreinsunareldur sem er fyrsta ljóðabók höfundar. Steindór er doktor í visíndasagnfræði. Hann er höfundur nokkurs fjölda fræðigreina og þessara bóka til viðbótar þeirri sem hér er nefnd, Genin okkar (2002), Lífið er staður þar sem bannað er að lifa (2023).
Sunnudaginn 23. nóvember verður ævisögukvöld þar sem Hrannar Bragi Eyjólfsson fjallar um ævisögu sr. Braga Friðrikssonar og Sr. Þorvaldur Karl Helgason um ævisögu Karls Sigurbjörnssonar.