Guðsþjónusta og barnastarf á konudaginn kl. 11.00. Háskólakórinn syngur undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Prestur er sr. Skúli Sigurður Ólafsson. Sunnudagaskólinn hefst inni í kirkju en fer svo í safnaðarheimilið þar sem boðið er upp á söng, sögur og leik undir stjórn Kristrúnar Guðmundsdóttur og félaga. Ari Agnarsson leikur undir. Hressing og samfélag á torginu eftir stundirnar.