Sunnudaginn 23. október kl 11:00 opnum við sýningu Rúnars Reynissonar, ,,Heimaslóð“ við guðsþjónustu í Neskirkju. Fjallað verður um verkin í predikun og gestum og gangandi er boðið upp á veitingar að helgihaldinu loknu. Þá er ný sálmabók komin í hús og verða sungnir úr henni sálmar sem ekki voru í þeirri gömlu. Félagar úr Kór Neskirkju leiða sönginn undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Barnastarfið á sama tíma. Söngur og sögur. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson.