Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11 á Allra heilagra messu. Kirkjugestir tendra kerti til minningar um látna ástvini. Sigurbjörg Telma Sveinsdóttir syngur einsöng. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudagaskólinn er í safnaðarheimilinu. Söngur, sögur og gleði undir stjórn Hrafnhildar Guðmundsdóttur og Ara Agnarssonar sem leikur undir söng. Hressing og samfélag á torginu eftir stundirnar.