Sunnudaginn 20. mars, pálmasunnudag, kl. 11:00 kveður sr. Örn Bárður Jónsson Nessöfnuð þar sem hann hefur þjónað frá haustdögum 1999. Með honum þjóna sr. Sigurvin Lárus Jónsson og sr. Skúli S. Ólafsson. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Barnastarfið verður á sínum stað með söng og leik og er það í umsjá Katrínar, Andreu, Odds og Stefaníu. Sóknarnefnd býður upp á kaffiveitingar að messu lokinni. Allir vekomnir.