Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prófastur setur Sr. Skúla S. Ólafsson í embætti sóknarprests. Kór Neskirkjur og Drengjakór Reykjavíkur syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Söngur, gleði og sögur í barnastarfinu. Umsjón Ari, Oddur og Stefanía. Eftir messu verður boðið upp á vöfflur og samfélag á Torginu.