Á aðfangadag kl. 16.00 verður haldin helgistund fyrir börn og fjölskyldur í Neskirkju. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson mun stýra stundinni ásamt starfsfólki barnastarfsins. Barna- og Stúlknakór Neskirkju flytja jólalög og sálma undir stjórn Steingríms Þórhallssonar og Jóhönnu Halldórsdóttur. Helgileikur með búningum verður settur á svið með viðstöddum og mun Rúnar Reynisson stýra því líkt og hefð er orðin. Loks koma brúður í heimsókn og skemmta börnunum. Jólastund barnanna er dýrmætt tilboð til að stytta börnunum biðina og upplifa með þeim helgi jólanna.