Fimmtudaginn 6. nóvember verður fimmtu hádegistónleikarnir með Steingrími organista. Boðið er upp á Bach, Preludia og fúga í D – dúr sem er verk frá Weimar tíma kappans og seinna stóra verkið er Trío sónata númer 3 í d moll sem er ein sú viðameiri af systrunum sex. Tónleikarnir hefjast 12:00 og eru um hálftími. Enginn aðgangseyrir.