Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur, kemur á Krossgötur í stað Guðmundar Andra Thorsonar sem átti að koma skv. prentaðri dagskrá en forfallaðist. Steinunn hefur ritað glæsilegar bækur um hjónin Hallgrím Pétursson og Guðríði Símonardóttur og auk þess ritað leikrit um Guðríði. Steinunn ræðir um þau hjón og segir frá æsku Hallgríms, en á þessu ári eru liðin 400 ár frá fæðingu hans. Krossgötur hefjast kl. 13.30. Allir velkomnir.