Þá er komið að sjöttu tónleikunum í þessari yfirferð Steingríms Þórhallssonar organista um Preldúdíur og fúgur Bach. Þrjú mjög ólík verk verða nú á dagskrá en þetta eru næst síðustu tónleikarnir, Prelúdía og fúga í G -dúr BWV 541, Prelúdía og fúga í g – moll BWV 535 og loks hin fræga Fantasía og fúga í g – moll BWV 542. G dúrinn mjög leikandi og létt, g- mollinn svolítið dularfull og fantasían mjög stór og þung en áhrifamikil. Ókeypis er inn á tónleikanna sem hefjast kl. 12.00 og líkur 12.30.