Hópur af ungmennum og leiðtogum úr NeDó starfi Neskirkju og Molum í Skálholti fóru á vegum Neskirkju á Evrópumót YMCA í Prag í Tékklandi. Alls fóru 25 ungmenni auk tveggja fararstjóra frá Neskirkju og voru á ferðalagi 2.-11. ágúst. Ferðasaga mótsins verður birt á heimasíðu Neskirkju innan bráðar en áhugasamir eru velkomnir á ferðasögukvöld í NeDó þriðjudaginn 20. ágúst kl. 19.30. Myndir