Messa og barnastarf, sunnudaginn 25. nóvember kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Agnar Már Magnússon leikur jassspuna á píanóið. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng og syngur nokkra kórkafla úr Messías eftir Handel en kórinn flytur verkið 2. og 9. desember n.k. Organisti og stjórnandi Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Halla, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.