Uppeldisnámskeið í Neskirkju hefst miðvikudaginn 1. febrúar en námskeiðið kennir Helga Arnfríður sálfræðingur. Námskeiðið er einkum ætlað foreldrum barna á aldrinum 6 mánaða til 9 ára. Námskeiðið er á miðvikudögum 1., 8., 15. og 22. febrúar klukkan 17.00-19.00. Námskeiðsgjald er 8.500 kr. fyrir einstakling og 12.500 kr. fyrir uppalendur sama barns. Hámarksfjöldi þátttakenda er 14 manns.

Helga hefur áralanga reynslu af kennslu slíkra námskeiða en hún er sálfræðingur frá Árósaháskóla og starfar á Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins. Á námskeiðinu er m.a. farið í lögmál hegðunar, foreldrafærni, og hvernig við tölum við og hlustum á börnin okkar.
Skráning fer fram á sigurvin@neskirkja.is eða í síma 511-1560