Messa og barnastarf 8. jan. kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Einsöngvari Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzó sópran. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Lesarar úr hópi gesta úr frímúrarastúkunni Glitni, Jónas Þór Guðmundsson og Jakob Falur Garðarsson. Séra Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Texta dagsins er hægt að skoða hér. Opnuð verður ný myndlistarsýning á Torginu með ljósmyndum eftir Katrínu Elvarsdóttur. Léttar veitingar eftir messu.