Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11 og sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur. Einsöngur Ragnhildur Þórhallsdóttir. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Kór Neskirkju verður með kökubasar eftir messu. Samfélag og veitingar á Torginu. Ræðu Arnar Bárðar er hægt að hlusta á á bak við þessa smellu.