Í sumar heldur Neskirkja tvö leikjanámskeið fyrir börn á aldrinum 6 – 10 ára (fædd 2000 – 2004). Á leikjanámskeiðunum er fjölbreytt dagskrá í boði úti og inni. Meðal annars verður farið í hópleiki, þrautaleiki, skapandi verkefni unnin og farið í strætóferðir. Einu sinni á námskeiði er farið í ferð út fyrir borgina og slegið upp grillveislu.

Námskeið  I:  2. – 5. ágúst*
Námskeið II : 8. – 12. ágúst


Námskeiðin eru frá mánudegi til föstudags, klukkan 13 – 17. Á námskeiðunum gefst börnunum kostur á að kynnast kirkjunni og boðskap hennar í leik og starfi, auk þess að öðlast dýrmæt tengsl við nýja félaga. Áhersla er lögð á virðingu og vináttu á námskeiðunum og miðast leikir og verkefni við að efla og styrkja hópinn og einstaklinginn. Námskeiðunum er stjórnað af reyndu fólki sem hefur starfað með börnum á ýmsum vettvangi.

Skráning og verð
Þátttökugjald er 5.000 (4.000) krónur. Veittur er systkinaafsláttur. Innritun fer fram í Neskirkju alla virka daga í síma 511-1560 eða á sigurvin@neskirkja.is.

* Fjögurra daga námskeið