Þeir unglingahópar sem starfa við Neskirkju eru nú komnir í sumarfrí fram í byrjun ágúst. LÆK hópurinn hittist í síðasta sinn fyrir frí á mánudagskvöld en síðasta verkefni þeirra var þakklætisgjörningur á 17. júní. Fönix hélt veglega grillveislu í síðustu viku og í gær var farið út að leika í góða veðrinu, spilaður fótbolti og endað á lasagna heima hjá æskulýðsprestinum. NeDó hópurinn mun hittast eitthvað í júlí og eru tengiliðir Katrín Helga og Gunnar Óli. Fönix byrjar aftur 2. ágúst og LÆK 8. ágúst. Gleðilegt sumar 😉