Viltu leitast við að hafa Jesú Krist að leiðtoga lífsins? Og svar þeirra sem fermast er já. Hópur ungmenna var fermdur í Neskirkju á 2. degi páska, mánudeginum 25. apríl 2011. Þetta var síðasti fermingarhópurinn á þessu vori. En nokkur ungmenni verða fermd í messum á næstu vikum. Áður en athöfnin hófst í kirkjunni staldraði hópurinn við í kirkjutröppunum í safnaðarheimilinu og þá var þessi mynd tekin. Ef óskað er myndar í meiri upplausn er ráð að senda beiðni á s@neskirkja.is