Messa og vorferð barnastarfsins kl. 11. Sameiginlegt upphaf en síðan halda börnin út í vorið! Fermd verður Laufey Svafa Rúnarsdóttir, Holtsgötu 21. Flautuhópurinn Kósí leikur undir stjórn Pamelu De Sensi. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Bjarni Jónatansson. Sr. Toshiki Toma prédikar. Sr. Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Prédikun Toshikis er hægt að lesa hér.