Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Fermdur verður Kristján Thorlacius Finnsson, Grenimel 7. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og leikir í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, María og Ari. Samfélag, súpa, brauð og kaffi á Torginu eftir messu. Myndir af fermingardrengnum og fjölskyldu hans er hægt að skoða hér.