Sunnudaginn 7. mars kl. 11 verður haldin fjölskylduguðsþjónusta í Neskirkju í tilefni æskulýðsdags Þjóðkirkjunnar. Öll börn og ungmenni sem koma til kirkju fá gasblöðru í upphafi stundarinnar 😉 Barnakór Neskirkju undir stjórn Björns Thorarensen og Stúlknakór Neskirkju undir stjórn Steingríms Þórhallssonar syngja lög og sálma fyrir söfnuðinn og kór Neskirkju leiðir safnarsöng ásamt leiðtogum sunnudagaskólans. Sr. Þórhildur Ólafs þjónar fyrir altari og Sigurvin Jónsson og Halldóra Geirharðsdóttir (Barbara Trúður) prédika. Allir velkomnir.